Velkomin á vef Dyrhólaey

Dyrhólaey er klettaeyja sem gengur í sjó fram við suðurströnd Íslands. Hún er syðsti hluti landsins og er um 120 metra há. Úti fyrir eru klettadrangar sem eru sérstæð nátturusmíð. Þar gefur að líta mjög fjölskrúðugt fuglalíf, má þar nefna fýl, langvíu, álku, súlu, lunda og ýmsar mávategundir. Talið er að Dyrhólaey hafi myndast á hlýskeiði seint á ísöld við gos í sjó. Vesturhluti hennar nefnist Háey og er úr móbergi en austurhluti hennar er oft nefndur Lágey sem að meginstofni er úr grágrýti. Áður fyrr var útræði frá Dyrhólaey og réru þá flestir bændur úr sveitinni til fiskjar að sækja sér björg í bú. Á síðari árum hafa bændur byggt upp myndarlegt æðarvarp í eynni sem nytjað er til dúntekju.

Nánar um Dyrhólaeyjarsvæðið.
Hafðu samband í síma 487 8500 - Fax. 487 8545 - GSM. 893 6800 - info@dyrholaey.com